Þreyta.
Ekki venjuleg „ég vakti of lengi yfir þáttaröð“-þreyta, heldur sú sem situr í skrokknum eins og blautur ullarsokkur. Stundum fylgir henni náladofi í fingrum, gleymska eða mæði upp stigann sem var aldrei vandamál áður.
Stundum er það B12.
Hvað gerir B12??
B12-vítamín er nauðsynlegt fyrir taugakerfið og fyrir myndun rauðra blóðkorna. Skortur getur valdið blóðleysi, þreytu og taugaeinkennum eins og dofa og náladofa. Ef skorturinn stendur lengi geta taugaskemmdirnar orðið varanlegar, svo þetta er vítamín sem borgar sig að taka alvarlega.
B12 er vatnsleysanlegt eins og hin B-vítamínin, en það er undantekningin í hópnum. Líkaminn getur geymt það í lifrinni í mörg ár. Skortur kemur því oft hægt og hljóðlega, löngu eftir að inntakan minnkaði.
Hver þarf að passa sig?
B12 er nánast eingöngu að finna í dýraafurðum: kjöti, fiski, eggjum og mjólkurvörum. Fólk sem borðar engar dýraafurðir þarf því að taka B12 sem bætiefni eða borða B12-bætt matvæli. Það er ekki valkvætt.
Eldra fólk tekur oft verr upp B12 úr fæðunni, og sum algeng lyf, til dæmis sykursýkislyfið metformín og ákveðin magalyf, geta dregið úr upptökunni. Ef þú ert í einhverjum af þessum hópum er gott að ræða B12 við heimilislækni. Einföld blóðprufa segir til um stöðuna.
Prófaðu: Ef þú borðar lítið eða ekkert af dýraafurðum, kíktu á innihaldslýsinguna á jurtamjólkinni eða morgunkorninu þínu og athugaðu hvort B12 sé þar.
Hljóðlátt vítamín. Hávær skortur.
Hversu mikið þarftu?
Fyrir B12 er ekki gefinn út ráðlagður dagskammtur heldur viðmið um nægjanlega neyslu (AI). Það er 4,0 µg á dag fyrir fullorðna, 4,5 µg á meðgöngu og 5,5 µg við brjóstagjöf.
Heimildir
- Embætti landlæknis (2024). Ráðlagðir dagskammtar og nægjanleg neysla af vítamínum og steinefnum.
- National Institutes of Health, Office of Dietary Supplements. Vitamin B12 – Fact Sheet for Health Professionals.
Þessi pistill er hluti af greinaröð um vítamín á heilsumal.is.
