Heilsumál
Eldhúsið

Kjarnhiti við eldun

Finndu réttan kjarnhita fyrir það sem þú ert að elda.

Nautakjöt

  • Lítið steikt rare 50–52°C
  • Léttsteikt medium rare 54–57°C
  • Meðalsteikt medium 60–63°C
  • Meðalvel steikt medium well 65–67°C
  • Gegnsteikt well done 68–71°C

Steikur og lundir. Algengasta valið er léttsteikt.

Lambakjöt

  • Lítið steikt rare 50–52°C
  • Léttsteikt medium rare 54–57°C
  • Meðalsteikt medium 60–63°C
  • Meðalvel steikt medium well 65–67°C
  • Gegnsteikt well done 68–71°C

Læri, hryggur og file. Lambakjöt er safaríkast léttsteikt til meðalsteikt.

Hreindýr

  • Lítið steikt rare 50–52°C
  • Léttsteikt medium rare 52–55°C
  • Meðalsteikt medium 60–63°C
  • Meðalvel steikt medium well 65–66°C
  • Gegnsteikt well done 68°C

Villibráð er mjög fitulítil og þornar hratt. Best við 52–55°C.

Folaldakjöt

  • Lítið steikt rare 49–52°C
  • Léttsteikt medium rare 54–57°C
  • Meðalsteikt medium 60–63°C
  • Meðalvel steikt medium well 65–66°C
  • Gegnsteikt well done 68°C

Meyrt og magurt, líkt nautakjöti en þornar fyrr.

Svínakjöt

  • Safaríkt ljósbleikt 63°C
  • Meðalsteikt medium 65°C
  • Gegnsteikt well done 68–72°C

Lundir og kótelettur mega vera ljósbleikar að innan. Svínahakk þarf alltaf 75°C.

Hamborgarhryggur

  • Gegnhitað 68–72°C

Á að ná minnst 68°C, sama hvaða eldunaraðferð er notuð. 72°C þykir mörgum fullkomið.

Kjúklingur, kalkúnn, önd og gæs

  • Gegnhitað 75°C

Fuglakjöt á alltaf að gegnhita. Mældu í þykkasta hluta bringu eða læris, án þess að snerta bein. Safinn á að vera tær.

Hakk, hamborgarar og bollur

  • Gegnhitað 75°C

Við hökkun berast bakteríur af yfirborði kjötsins inn í það. Hakk á því alltaf að gegnsteikja, líka nautahakk.

Lax, þorskur og annar fiskur

  • Fulleldað 63°C

Fiskurinn er tilbúinn þegar hann flagnar auðveldlega og er ógegnsær í gegn.

Rjúpa

  • Lítið steikt rare 50°C
  • Meðalsteikt medium 52–54°C
  • Gegnsteikt well done 55–60°C

Rjúpubringur eru hefðbundið bornar fram bleikar. Lærin eru oftast elduð lengur.

Nautalund Wellington

  • Léttsteikt medium rare 52°C

Takið lundina út við 52°C og látið hvíla. Hitinn heldur áfram að hækka inni í deiginu.

Egg

  • Linsoðið 4 mínútur
  • Miðlungs 6 mínútur
  • Harðsoðið 8 mínútur

Tíminn er talinn frá því að eggin fara út í vatn sem sýður kröftuglega.

Góð ráð

  • Notaðu kjöthitamæli. Stingdu honum í þykkasta hluta kjötsins, án þess að snerta bein eða fitu.
  • Taktu kjötið fyrr út. Hitinn heldur áfram að hækka um nokkrar gráður á meðan kjötið hvílir.
  • Leyfðu kjötinu að hvíla. Þá dreifist safinn og kjötið þornar ekki þegar það er skorið.
  • Fuglakjöt og hakk alltaf í gegn. Þar eru hitamörkin öryggisatriði en ekki smekksatriði: 75°C í kjarna.

Heimildir: kjarnhiti.com, kjothiti.is, Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.