Heilsumál
Hugur

Hlauptu frá svarta hundinum

Þriðjudagur í nóvember. Klukkan er orðin fjögur og það er strax orðið dimmt. Íþróttataskan hefur staðið pökkuð við útidyrnar síðan á sunnudag, með handklæðinu, vatnsbrúsanum og öllum góðu fyrirheitunum. Hún horfir á þig í hvert sinn sem þú gengur fram hjá. Og þú horfir á hana til baka, alveg eins og hún sé tíu tonna akkeri sem einhver skildi eftir í forstofunni.

Winston Churchill kallaði þunglyndið sitt svarta hundinn. Það er góð lýsing, því hundurinn fer ekki bara með þér út að ganga. Hann leggst ofan á þig í sófanum, þungur og hlýr og algerlega áhugalaus um þær áætlanir sem þú hafðir fyrir daginn. Þess vegna er svo grimmilega öfugsnúið að eitt af því sem hjálpar mest gegn þunglyndi er einmitt það sem þunglyndið gerir erfiðast: að standa upp og hreyfa sig.

En hjálpar hreyfing í alvöru, eða er þetta bara klisja úr ræktinni??

Hún hjálpar. Og það eru ekki lengur bara íþróttafræðingar og hlauparar með endorfínglampa í augum sem halda því fram. Árið 2024 birti læknatímaritið BMJ stærstu samantekt sem gerð hefur verið á hreyfingu sem meðferð við þunglyndi. Rannsakendurnir fóru yfir 218 slembirannsóknir með rúmlega 14 þúsund þátttakendum, sem allir glímdu við þunglyndi. Niðurstaðan var skýr: hreyfing er árangursrík meðferð við þunglyndi, og ganga eða skokk, jóga og styrktarþjálfun komu best út, sérstaklega þegar æfingarnar voru krefjandi.

Það sem vakti mesta athygli var samanburðurinn við hefðbundna meðferð. Áhrif hreyfingar voru sambærileg við hugræna atferlismeðferð (HAM), og sumar tegundir hreyfingar höfðu meiri áhrif en þunglyndislyf ein og sér. Önnur stór samantekt frá 2023, í British Journal of Sports Medicine, komst að svipaðri niðurstöðu og hvatti til þess að hreyfing yrði boðin sem gagnreynd meðferð, helst undir leiðsögn og í hóp.

Þetta þýðir samt EKKI að hlaupaskór komi í staðinn fyrir lyf eða sálfræðing. Rannsóknirnar á hreyfingu eru margar hverjar litlar og erfitt er að blinda þátttakendur, því fólk veit auðvitað hvort það er að hlaupa eða ekki. Hreyfing er öflugt verkfæri í verkfærakassanum, en hún er ekki eina verkfærið. Best virðist oft að nota hana samhliða annarri meðferð.

En af hverju virkar þetta??

Hér þarf aðeins að uppfæra gömlu söguna. Lengi var sagt að þunglyndi stafaði einfaldlega af skorti á serótóníni og að hreyfing fyllti á tankinn. Í dag er myndin flóknari. Stór yfirlitsrannsókn frá 2022 fann ekki sannfærandi vísbendingar um að þunglyndi stafi af of litlu serótóníni, þótt aðrir vísindamenn hafi gagnrýnt þá niðurstöðu og telji serótónínkerfið samt koma við sögu. Það sem flestir eru sammála um er að þunglyndi á sér margar rætur, bæði líffræðilegar, sálrænar og félagslegar.

Sama gildir um hlaupavímuna, þessa hlýju sælutilfinningu sem kemur eftir góða og langa æfingu. Hún hefur lengi verið eignuð endorfíni. En endorfín komast illa inn í heilann, og þýsk rannsókn frá 2015 sýndi að hjá músum réðust róandi og verkjastillandi áhrif hlaupanna af kannabínóíðakerfi líkamans, sem framleiðir sín eigin kannabislíku efni. Já, þú last þetta rétt. Líkaminn á sitt eigið gras, og hann gefur þér smá af því þegar þú leggur þig fram.

En líklega skiptir efnafræðin ekki öllu. Hreyfing bætir svefn, gefur dögunum takt, dregur úr streitu, og hverri æfingu fylgir lítil en raunveruleg tilfinning um að hafa ráðið við eitthvað. Fyrir manneskju sem hefur misst trúna á eigin getu er það enginn smáræðis sigur.

Þarf ég þá að taka lotuæfingar þar til ég sé stjörnur??

Nei. Og þetta er kannski mikilvægasti punkturinn í allri greininni.

Lotuþjálfun af mikilli ákefð, eða HIIT (high-intensity interval training), virkar vel. Safngreining frá 2024 á 34 slembirannsóknum sýndi að HIIT dró úr þunglyndiseinkennum, og BMJ-samantektin fann að krefjandi hreyfing hafði almennt meiri áhrif en mjög létt hreyfing. HIIT hentar því vel þeim sem hafa orku og gaman af því að taka á, og hefur þann kost að æfingarnar eru stuttar.

En rannsóknirnar sýna líka að HIIT er ekki endilega betri en hófleg hreyfing, eins og rösk ganga eða rólegt skokk. Og það sem skiptir mestu er ekki hvaða æfing er „best“ á pappírnum, heldur hvaða æfingu þú heldur út. Sú hreyfing sem þú stundar í raun vikum saman slær alltaf út hina fullkomnu æfingu sem þú gefst upp á eftir þrjú skipti. Í BMJ-rannsókninni var brottfall til dæmis minnst úr jóga og styrktarþjálfun, sem bendir til þess að fólk eigi auðveldara með að halda sig við þær.

Hvernig fer maður af stað?

Byrjaðu smátt. Grátlega smátt, ef þörf krefur. Tíu mínútna ganga í hádeginu er hreyfing. Fimm mínútur á hjólinu í ræktinni eru hreyfing. Þegar þunglyndið er sem verst er markmiðið ekki að bæta persónulegt met, heldur að komast út um dyrnar. Og þegar orkan leyfir má byggja ofan á það.

Ef þú vilt prófa lotuþjálfun þarf ekki að reikna út púls upp á slag. Gamla formúlan, 220 mínus aldur, er grófari en margir halda, og nýrri formúla (208 mínus 0,7 sinnum aldur) er nákvæmari en getur samt skeikað um tíu slög til eða frá. Einfaldara er að nota eigin tilfinningu. Í hröðu lotunni áttu að vera það móð að þú getir sagt eitt eða tvö orð en ekki heila setningu. Í rólegu lotunni áttu að geta talað aftur.

Einföld byrjun gæti litið svona út, á hjóli, skíðavél, bretti eða úti í brekku: Fimm mínútna róleg upphitun. Svo 30 sekúndur af krefjandi álagi og 90 sekúndur rólega, endurtekið fimm til sex sinnum. Að lokum fimm mínútur rólega niður. Allt saman tekur þetta um 20 mínútur. Tvisvar til þrisvar í viku er góð byrjun, og með tímanum má lengja hröðu loturnar eða fjölga þeim.

Það hjálpar líka að gera þetta með öðrum. Æfingafélagi, gönguhópur eða hóptími í ræktinni gerir það miklu erfiðara að sleppa, því þá er einhver sem bíður eftir þér. Og svarti hundurinn á erfiðara með að halda þér í sófanum þegar vinkona stendur í dyrunum með húfuna á höfðinu.

Áður en þú byrjar

Ef þú ert með hjartasjúkdóm, háan blóðþrýsting eða aðra langvinna sjúkdóma, eða hefur ekki hreyft þig lengi, er skynsamlegt að ræða við heimilislækni áður en þú ferð í æfingar af mikilli ákefð. Og ef þú tekur þunglyndislyf eða ert í meðferð, ekki hætta henni vegna þess að þú ert byrjuð að hreyfa þig. Hreyfingin er viðbót, ekki staðgengill.

Ef þunglyndið er þungt og þú átt erfitt með að halda í vonina, talaðu við einhvern strax. Heilsugæslan, Hjálparsími Rauða krossins í síma 1717 og Píeta-samtökin í síma 552 2218 eru til staðar. Hjálparsíminn og Píeta eru opin allan sólarhringinn og samtalið er ókeypis.

Svarti hundurinn hverfur kannski ekki á einni nóttu. En hann þreytist líka. Og það er ótrúlegt hvað hann verður lítill þegar þú ert búin að koma honum út að hlaupa nokkrum sinnum í viku.

Taktu fyrsta skrefið í dag. Bara eitt.

Heimildir

Meira að lesa

Hugur

Desember. Aftur.

Desember er að koma, og þú finnur það í loftinu. Jólalögin byrjuðu að hljóma í matvörubúðinni strax í byrjun nóvember, fyrsta jólahlaðborðið er komið í tölvupóstinn og dagatalið…

Fullorðnir

Skipuleggðu þig með Eisenhower aðferðinni

Upphaf árs markar oft tímamót hjá fólki, það setur sér markmið og stefnir að ná þeim á nýju ári. "TO-DO" listar eru oft ómarkvissir og erfitt að greina á milli þeirra hluta sem eru mikilvægir og þeirra sem eru það síður. Hér skoðum við aðferð sem er kennd við Dwight D. Eisenhower, 34. forseta Bandaríkjanna.