Desember er að koma, og þú finnur það í loftinu. Jólalögin byrjuðu að hljóma í matvörubúðinni strax í byrjun nóvember, fyrsta jólahlaðborðið er komið í tölvupóstinn og dagatalið lítur út eins og flugumferðarstjórnin í Keflavík á háannatíma.
Jólagjafalistinn er orðinn lengri en Laugavegurinn og smákökusortirnar eiga helst að vera sjö, minnst. Svo eru það jólakortin, tiltektin, skötuveislan, litlu jólin, stóru jólin og jólatónleikarnir sem þú keyptir miða á í ágúst í blússandi bjartsýniskasti. Og einhvers staðar þarna á milli á að ríkja FRIÐUR, hátíð ljóss og friðar, á meðan hjartað slær eins og bassatromma á þungarokkstónleikum og myrkrið læðist inn klukkan fjögur.
Kannastu við þetta??
Ef svo er, þá á það við um ótrúlega mörg. Desember er ekki bara hátíð heldur líka álagstími: meira að gera, minni birta, meiri peningar út og minni svefn. Ofan á það bætist krafan um að allt eigi að vera fullkomið og að allir eigi að vera glaðir, alltaf.
Fyrir sum eru jólin líka tími saknaðar. Tómur stóll við borðið, flókin fjölskyldumál eða einmanaleiki sem verður háværari þegar allir aðrir virðast vera í samstæðum jólapeysum á Instagram. Það er ekkert að þér þótt jólin séu erfið. Nákvæmlega ekkert.
En hvernig kemstu í gegnum þetta??
Hér eru nokkur atriði sem vert er að prófa:
- Strikaðu út. Skrifaðu niður allt sem „á“ að gera fyrir jólin og spurðu þig svo hvað af þessu skiptir ÞIG raunverulega máli. Restin má fara. Smákökurnar mega vera tvær sortir, eða ein, eða keyptar úti í búð, og jólin koma samt.
- Settu peningamörk. Ákveðu upphæðina áður en þú ferð í búðina en ekki eftir á, því fjárhagsáhyggjur eru einn algengasti streituvaldurinn í desember.
- Segðu nei. Þú mátt sleppa boði og þú mátt fara snemma heim. „Nei takk“ er heil setning og þarf enga útskýringu.
- Haltu rútínunni. Svefn, hreyfing og reglulegur matur halda þér á jörðinni þegar allt annað fer á flug. Göngutúr í hádeginu, þegar birtan lítur loksins við í smá stund, gerir meira en þig grunar.
- Passaðu glasið. Jólabjórinn og jólaglöggin eru alls staðar. Áfengi getur deyft kvíðann í kvöld en á það til að skila honum með vöxtum daginn eftir.
- Taktu frá tíma fyrir þig. Það þarf ekki að vera klukkutími, eða hálftími… korter með kaffibolla áður en heimilið vaknar er alveg nóg.
- Talaðu um það. Við vin, maka eða manneskju sem þú treystir, eða jafnvel köttinn. Kvíðinn minnkar oft bara við það að orða hann upphátt.
Jólin þurfa ekki að vera fullkomin. Þau þurfa bara að vera þín.
Ef kvíðinn verður of mikill, dagarnir verða þungir og myrkrið fer að setjast að innra með þér, talaðu þá við heimilislækni eða hringdu í Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717. Hann er opinn allan sólarhringinn, líka um jólin.
Áskorun dagsins er einföld: strikaðu EITT atriði af jólalistanum í dag, bara eitt, og finndu hvað gerist.
Gleðileg (og rólegri) jól!!
Fleiri póstar og þættir um andlega og líkamlega heilsu á heilsumal.is.
