Yfir 80% aldraða á geðlyfjum

Helga Hansdóttir öldrunarlæknir framkvæmdi rannsókn sem leiddi m.a. í ljós að yfir 80% íbúa á hjúkrunarheimilum á Íslandi taka geðlyf, þar af var yfir helmingur þeirra að taka þunglyndislyf. Rúv greindi frá.

Ég hef þá trú að ef einstaklingar hreyfa sig reglubundið, t.d samkvæmt ráðleggingum lýðheilsustöðvar (Ráðleggingar um hreyfingu) og borða hreinan og hollan mat, nóg af ávöxtum og grænmeti, hnetum, fræjum og baunum, hreinan fisk, kjúkling og kjöt, þá eiga þeir að geta haldið góðri heilsu og verið lyfjalausir fram eftir öllum aldri.

Vissulega getur fólk veikst og erfið áföll myndað djúp sár en þá er lykilatriði að vinna út frá rót vandans. Ef vélin fer að hökta, ef einkenni gera vart við sig þarf að staldra við og skoða hvað veldur og vinna út frá því.

Í stað þess að taka lyf sem oft á tíðum fela einkennin, en einkenni eru það eina sem segir okkur að eitthvað sé að og þurfi að laga.

Hægt er að finna fjölda leiða til að fá bót sinna meina. Alhliða líkamsrækt gerir kraftaverk sem og hrein fæða eins og ég nefndi hér að ofan. Það að efla starfsemi og varnir líkamans er algerlega málið.

Það getur verið gott að fá leiðsögn þegar verið er að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt í langan tíma. Sundleikfimi er víða í boði og gönguhópar.

Leitið og þér munið finna.

Mér er það mjög minnistætt fyrir nokkrum árum þegar kona kom til mín í nudd 65 ára að aldri. Nokkrum árum áður hafði heilsu hennar hrakað til muna, var komin með gigtareinkenni, fann fyrir þunglyndi og kvíða, fann fyrir stirðleika, verkjum og vonleysi. Hún leitaði læknis sem lét hana á nokkur lyf sem lítið gagn gerðu en höfðu slæmar aukaverkanir.

Í afmælisgjöf fær hún safapressu og fer að pressa grænmeti og ávexti eins og hún fengi borgað fyrir, á sama tíma tók hún út allan sykur og fór út að ganga og synda til skiptis eftir dögum.

Öll þau einkenni sem ég nefndi hér að ofan hurfu eins og dögg fyrir sólu og hún hætti á öllum lyfjum.

Ég hvet eldri borgara og reyndar fólk á öllum aldri að vanda fæðuvalið og leggja stund á reglubundna hreyfingu. Að horfa gagnrýnt á öll lyf og reyna bæta heilsu sína með náttúrulegri aðferðum.

Í sumum tilfellum eru lyf nauðsynlegt og allt í góðu með það en ég lít á lyfjakostinn sem úrræði þegar búið er að reyna allt annað.

Njótið lífsins.