Heilsumál
Tækni

Spurning um að huga að snjallsímapásu ?

Snjallsímavæðingin hefur gleypt okkur öll ! Hvert sem farið er sjáum við fólk sokkið ofan í símann með skjábirtuna í andlitinu. Þetta á mest við um ungt fólk og unglingana en margir fullorðnir eru fastir í viðjum vanans. Allir keppast um að setja myndir af daglegu amstri sínu inn á samskiptamiðla og mikla og stórgera allt sem þeir eru að gera sem oft á tíðum er lítið merkilegt. Hugsið ykkur tímann sem snjallsíminn fær á kostnað því sem áður var. Enn eitt tækið sem kyrrsetur okkur ! Fólk er að fara seint að sofa því það gleymir sér í veröld sem snjallsíminn færir því og svo það fyrsta sem fólk gerir á morgnana er að teygja síg í símann. Síminn við matarborðið, síminn í bílnum, síminn í tímum, síminn á fundum, síminn í vinnunni, við erum meira að segja með skjábirtuna í andlitinu þegar við erum í kvikmyndahúsum ! Hugsið ykkur frelsið og tímasparnaðinn ef manni tækist nú að líta upp frá skjánum! Spurning um að huga að snjallsímapásu ?

Meira að lesa

Tækni

Þarftu púlsmæli ?

Þetta með púlsmælinn er ekki ósvipað og með mælaborðið í bílnum. Við erum með hraðamæli, snúningshraðamæli, kílómetramæli, allskonar viðvörunarljós, klukku o.fl. Allt þetta er ekki nauðsynlegt til þess að við getum keyrt bílinn frá A-Ö en það sannarlega veitir okkur góðar og mikilvægar upplýsingar um stöðu bílsins og hvernig hann er að vinna. Ef vantar olíu á bílinn og olíuljósið kviknar þá er það mál sem við þurfum að taka á hið snarasta.

Fullorðnir

Skipuleggðu þig með Eisenhower aðferðinni

Upphaf árs markar oft tímamót hjá fólki, það setur sér markmið og stefnir að ná þeim á nýju ári. "TO-DO" listar eru oft ómarkvissir og erfitt að greina á milli þeirra hluta sem eru mikilvægir og þeirra sem eru það síður. Hér skoðum við aðferð sem er kennd við Dwight D. Eisenhower, 34. forseta Bandaríkjanna.

Tækni

Af hverju nota púlsmæli ?

Þegar við keyrum bílinn þá fylgjumst við gjarnan með mælaborðinu sem gefur okkur margvíslegar upplýsingar um ástand bílsins og aksturslags okkar. Í mælaborðinu eru allskonar mælar hraðamælir, snúningsmælir,…