Þetta lasagna sem inniheldur ekkert kjöt er orðið fáránlega vinsælt hjá dætrunum. En þetta er fyrsta grænmetislasagnað sem yngri dóttirin elskar – og ég er svo sannarlega búin að gera þau mörg! Þetta lasagna er einnig upplagt að gera t.d. fyrri part dags og hita svo upp og bera á borð um kvöldið – þetta geymist vel og er einnig mjög gott daginn eftir. Tortilla flögurnar sem ég notaði eru glútenlausar og kallast “Blue Chips frá Garden of Eatin’ “- nú veit ég bara ekkert hvort þær séu fáanlegar á Íslandi – en það er alltaf hægt að nota þá aðra tegund – já eða sleppa þeim.
Innihald:
- 1 ½ tsk ólífuolía
- 1 rauðlaukur – saxaður
- 3 hvítlauksgeirar – saxaðir smátt
- 1 appelsínugul paprika – söxuð í teninga (einnig hægt að nota gula)
- 1 rauð paprika – söxuð í teninga
- ½ rautt chilli – smátt saxað (ef þú vilt hafa þetta “spicy” þá er um að gera að bæta við chilli
- ½ bolli maísbaunir
- 1 bolli niðursoðnir smátt saxaðir tómatar
- 1 bolli tómatpúrra
- 2-3 bollar smátt saxað grænkál eða spínat
- 1 dós svartar baunir – skolaðar og vökvinn látinn renna af þeim
- 3 bollar soðin hýðishrísgrjón eða brún hrísgrjón
- ½ bolli rifinn ostur
- Tortilla flögur eftir smekk
- Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Kryddin
- 1 msk chilli duft
- 1 ½ tsk cumin
- 1 tsk paprikuduft
- ¼ tsk cayenne pipar – meira ef þú vilt hafa þetta “spicy”
- ¼ tsk kóríanderduft
Aðferð:
- Byrjaðu á að sjóða hrísgrjónin (ca 1-1.5 bolli af ósoðnum grjónum með 2-3 bollum af vatni)
- Hitaðu olíuna rétt yfir meðalhita í djúpum stórum potti.
- Bættu við lauknum, hvítlauknum, paprikunni og chilli og steiktu í 5 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn glær og paprika mjúk.
- Kryddaðu aðeins með sjávarsalti og svörtum pipar.
- Bættu öllum kryddunum út í ásamt gulu baununum, tómötunum, púrrunni, grænkálinu/spínatinu, baununum, hrísgrjónunum og ¼ bolla af rifnum osti.
- Hrærðu þessu öllu vel saman. Hér geturðu smakkað aðeins til og kryddað aðeins meira með salti & svörtum pipar ef þér finnst þurfa.
- Smurðu stórt eldfast mót með olíu og stilltu ofninn á 190 gráður.
- Helltu blöndunni í eldfasta mótið og dreifðu afganginum af rifna ostinum yfir. Hér er hægt að mylja smá tortilla flögur yfir og/eða hafa þær með sem meðlæti.
- Setjið álpappír yfir og bakið í 15 – 20 mínútur.
- Borið fram með miklu magni af fersku grænmeti.
Njóttu!
Með heilsukveðju frá Rotterdam,
Ásthildur Björns