Kjarnhiti við eldun
Finndu réttan kjarnhita fyrir það sem þú ert að elda.
Nautakjöt
- Lítið steikt rare 50–52°C
- Léttsteikt medium rare 54–57°C
- Meðalsteikt medium 60–63°C
- Meðalvel steikt medium well 65–67°C
- Gegnsteikt well done 68–71°C
Steikur og lundir. Algengasta valið er léttsteikt.
Lambakjöt
- Lítið steikt rare 50–52°C
- Léttsteikt medium rare 54–57°C
- Meðalsteikt medium 60–63°C
- Meðalvel steikt medium well 65–67°C
- Gegnsteikt well done 68–71°C
Læri, hryggur og file. Lambakjöt er safaríkast léttsteikt til meðalsteikt.
Hreindýr
- Lítið steikt rare 50–52°C
- Léttsteikt medium rare 52–55°C
- Meðalsteikt medium 60–63°C
- Meðalvel steikt medium well 65–66°C
- Gegnsteikt well done 68°C
Villibráð er mjög fitulítil og þornar hratt. Best við 52–55°C.
Folaldakjöt
- Lítið steikt rare 49–52°C
- Léttsteikt medium rare 54–57°C
- Meðalsteikt medium 60–63°C
- Meðalvel steikt medium well 65–66°C
- Gegnsteikt well done 68°C
Meyrt og magurt, líkt nautakjöti en þornar fyrr.
Svínakjöt
- Safaríkt ljósbleikt 63°C
- Meðalsteikt medium 65°C
- Gegnsteikt well done 68–72°C
Lundir og kótelettur mega vera ljósbleikar að innan. Svínahakk þarf alltaf 75°C.
Hamborgarhryggur
- Gegnhitað 68–72°C
Á að ná minnst 68°C, sama hvaða eldunaraðferð er notuð. 72°C þykir mörgum fullkomið.
Kjúklingur, kalkúnn, önd og gæs
- Gegnhitað 75°C
Fuglakjöt á alltaf að gegnhita. Mældu í þykkasta hluta bringu eða læris, án þess að snerta bein. Safinn á að vera tær.
Hakk, hamborgarar og bollur
- Gegnhitað 75°C
Við hökkun berast bakteríur af yfirborði kjötsins inn í það. Hakk á því alltaf að gegnsteikja, líka nautahakk.
Lax, þorskur og annar fiskur
- Fulleldað 63°C
Fiskurinn er tilbúinn þegar hann flagnar auðveldlega og er ógegnsær í gegn.
Rjúpa
- Lítið steikt rare 50°C
- Meðalsteikt medium 52–54°C
- Gegnsteikt well done 55–60°C
Rjúpubringur eru hefðbundið bornar fram bleikar. Lærin eru oftast elduð lengur.
Nautalund Wellington
- Léttsteikt medium rare 52°C
Takið lundina út við 52°C og látið hvíla. Hitinn heldur áfram að hækka inni í deiginu.
Egg
- Linsoðið 4 mínútur
- Miðlungs 6 mínútur
- Harðsoðið 8 mínútur
Tíminn er talinn frá því að eggin fara út í vatn sem sýður kröftuglega.
Góð ráð
- Notaðu kjöthitamæli. Stingdu honum í þykkasta hluta kjötsins, án þess að snerta bein eða fitu.
- Taktu kjötið fyrr út. Hitinn heldur áfram að hækka um nokkrar gráður á meðan kjötið hvílir.
- Leyfðu kjötinu að hvíla. Þá dreifist safinn og kjötið þornar ekki þegar það er skorið.
- Fuglakjöt og hakk alltaf í gegn. Þar eru hitamörkin öryggisatriði en ekki smekksatriði: 75°C í kjarna.
Heimildir: kjarnhiti.com, kjothiti.is, Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
