Hlauparar sem vilja fylgjast vel með hlaupunum sínum skiptast eiginlega í tvo hópa, þeir sem nota GPS hlaupaúr eða nota forrit í snjallsímanum. Bæði hlaupaúrin og snjallsímarnir geta tengst hjartanema sem festist yfir bringuna og sendir upplýsingar í tækin með Bluetooth tækni.
Hvort er betra ?
Það eru kostir og gallar við hvorutveggja. Og ekki í raun eitt rétt svar við því, í þessari grein skoðum við möguleikana og vonandi hjálpa þeir þér að ákveða hvora leiðina þú vilt fara.
GPS hlaupaúr
Kostir
- Græjan er minni um sig
- Auðvelt að fylgjast með tölunum á æfingunni
- Þú þarft ekki að vera með símann með þér
- GPS upplýsingarnar eru yfirleitt nákvæmari en í símunum og skila þ.a.l. nákvæmari upplýsingum um vegalengd og hraða
- Sum GPS úr bjóða einnig upp á möguleika að tengjast við aukahlut sem festur er við skó til að hægt sé að nota innanhúss
- Almennt gott aðgengi að upplýsingum um æfingarnar þínar, annaðhvort í úrinu sjálfu eða á vefþjónustu sem tengist því
Gallar
- Auka kostnaður, enn ein græjan sem þarf að kaupa. Verð frá c.a. kr. 40.000
- Græjan kemur með þeim möguleikum sem hún býður upp á frá byrjun, bætist ekkert við
Hjartanemi, snjallsími og forrit
Kostir
- Ef þú átt snjallsíma þá er þetta ódýrari kostur
- Þú getur hlustað á tónlist úr símanum fyrst þú ert með hann hvort eð er
- Ef þú fílar ekki forritin sem þú ert með, sækiru bara önnur eða uppfærir þau sem þú ert með sem oft koma með nýja möguleika
- Hjartanemi ekki dýr, eða í kringum kr. 10.000
Gallar
- Þú þarft að hafa símann með þér, annaðhvort í vasanum eða í einhverskonar hulstri sem þú festir á þig
- Erfiðara að sjá á skjáinn þegar þú ert að hlaupa
- Stundum eru GPS upplýsingarnar ekki mjög nákvæmar
- Geymsla upplýsinga og aðgengi að upplýsingum er mjög misjafnt
Þetta er ruglandi… hjálp!
Til að hjálpa þér að taka ákvörðun er gott að leita svara við eftirtöldum spurningum:
Viltu hafa símann með þér þegar þú ferð út að hlaupa ?
Hversu mikið ert þú tilbúinn að eyða ? Ef þú átt nú þegar snjallsíma þá er þetta eðlilega ódýrasti kosturinn.
Skiptir nákvæmni upplýsinga þig höfuðmáli ? Þá er GPS hlaupaúr fýsilegri kostur.