Samkvæmt nýjum opinberum ráðleggingum um mataræði er mælt með fiskneyslu 2-3x í viku.
Fiskur er góður próteingjafi og í honum eru einnig ýmis önnur næringarefni, svo sem selen og joð. Feitur fiskur er einnig auðugur að D-vítamíni og löngum ómega-3 fitusýrum en þessi næringarefni eru í fáum öðrum matvælum en sjávarfangi. Regluleg neysla á feitum fiski getur dregið úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Bæði feitur fiskur og magur hefur jákvæð áhrif á heilsuna en næringarinnihaldið er ólíkt og þess vegna skiptir máli að borða hvort tveggja. Ráðlagt er að borða fisk tvisvar til þrisvar sinnum í viku sem aðalrétt. Algengur skammtur af fiski er um 150 g. Æskilegt er að ein af fiskmáltíðunum sé feitur fiskur, t.d. lax, bleikja, lúða eða makríll.
Hollráð um fiskneyslu
- Prófa mismunandi aðferðir við að matreiða fiskinn.
- Hægt er að sjóða, gufusjóða, steikja eða grilla fisk eða baka í ofni með grænmeti og kryddjurtum.
- Nota hvert tækifæri til að fá sér fisk, t.d. í mötuneytinu eða þegar farið er út að borða.
- Nota fisk eða skelfisk sem álegg á brauð, í salöt, súpur og smárétti.
- Nota afganga af fiskréttum í salöt, plokkfisk eða sem tortillufyllingu.
- Velja skráargatsmerktar fiskvörur þegar kostur er.
Birt með góðfúslegu leyfi Embætti landlæknis