Föstudagspizzan

Föstudagspizzan er mitt uppáhald þessa föstudagana. Uppskriftin er um ein ofnplata. Mæli með því að tvöfalda uppskriftina – þetta rýkur fljótt út! Þetta er líka virkilega góð pizza sem hægt er að nýta í afganga daginn eftir.

Innihald:

  • 2 bollar möndlumjöl
  • 2 egg
  • 2 msk Extra Virgin ólífuolía
  • 1 tsk sjávarsalt
  • Smá ólífuolía á bökunarpappírinn

Aðferð:

  1. Hitaðu ofninn í 170°c
  2. Blandaðu öllu vel saman í skál.  Ef þér finnst deigið vera of blautt þá geturðu bætt við smávegis af möndlumjöli.  Eggjastærð getur nefnilega haft áhrif ;)
  3. Penslaðu lítillega tvær arkir af bökunarpappír með ólífuolíunni.
  4. Settu deigið á miðjuna á annarri örkinni og settu svo hina örkina (með olíuhliðina niður) þar ofan á.
  5. Notaðu hendurnar eða kökukefli til að fletja deigið út. Ég hef mína pizzu frekar þunna.
  6. Efri bökunarpappírinn fjarlægður.
  7. Pizzan sett í ofn og bökuð í um 10-15 mín. Eða þar til miðjan er nánast bökuð.
  8. Pizzan tekin út og áleggið sett yfir.*
  9. Bökuð í um 15 mín í viðbót eða þar til grænmetið og áleggið er bakað og osturinn er bráðnaður.
  10. Borin fram t.d. með rucolla-salati og rifnum ferskum parmesanosti.

*Dæmi um uppáhaldsáleggið mitt: hvítlaukur, rautt chilli, ætiþistlar, sólþurrkaðir tómatar, svartar ólífur, ferskir tómatar, brokkolí og svo smá ostur.

Njótið!