1. Að leita sér aðstoðar.
Leita sér aðstoðar, viðurkenna vandann og athugið að þetta er ekkert til að skammast sín yfir, heldur eitthvað sem getur hent alla og skert lífsgæði viðkomandi verulega og haft áhrif á ástvini og fólkið í kring.
Það að tala við sína nánustu eða leita sálfræðings eða heilsumarkþjálfa getur gert úrslitakostinn. Víða er einnig hægt að finna upplýsingar um aðstoð: netið, bækur, myndbönd, leitið og þér munið finna.
2. Hreyfing.
Hreyfing er að mínu mati besta aðferðin við að hlaupa af sér hundinn, sér í lagi hiit æfingar. Frábært er að gera þær úti en það er að sjálfsögðu líka hægt á líkamsræktarstöð.
3. Hugræn atferlismeðferð.
HAM eða hugræn atferlismeðferð. Þar er byggt á að skilja hvernig hugsanir hafa áhrif á hluti í lífi okkar. Leitast er við að leiðrétta svokallaðar hugsanaskekkjur sem valda vanlíðan, s.s að læra að sjá alla hluti í öðru og jákvæðara ljósi.
4. Mataræði.
Mataræði skiptir gríðarlega miklu máli. Sýnt hefur verið fram á að unnin vara geti haft neikvæð áhrif á andlegan líðan.
Þarna er hvítur sykur í fyrsta sæti. Ég vill líka setja inn hvíta hveitið (glútein) og flest allan unnin skyndibita. Vegna vinnslunnar (oft er þetta djúpsteikt þar sem notuð er feiti sem getur valdið bólgum í líkamanum) verða næringarefni af skornum skammti, en það eru einmitt það sem við þurfum: næring, ekki stútfullur magi af drasli.
Næringarefnin stuðla einmitt að því að öll líkamsstarfsemi sé upp á sitt besta. Ef við erum að borða sykrað og unnið drasl er viðbúið að upptaka næringaefna í smáþörmum verði skert sökum bólgna sem þessi matvæli eru að valda.
Þess ber að geta að geymsla á serótónín birgðum líkamans er að mestu í meltingarærunum. En serótónín er taugaboðefni, stundum kallað gleðihormónið og hefur áhrif á skap og líðan.
Ef allt er í bólgum og vitleysu í meltingafærunum gefur það auga leið að það hefur áhrif á hormónabúskap líkamans og þannig á þunglyndi.
5. Hugleiðsla.
Hugleiðslur, bæði núvitund (mindfullness) og innhverf íhugun (transendental meditation).
6. Lyfjagjafir.
Með von um gleði og kærleika