Gestir þáttarins eru í dag eru þær Silja Ástþórsdóttir og Hafdís Einarsdóttir frá samtökum um endometríósu. Í spjalli okkar förum við yfir endómetríósis sjúkdóminn (einnig kallaður legslímuflakk) sem er talið að ein af hverjum tíu konum þjáist af. Við ræðum um sjúkdóminn vítt og breitt og einnig persónulega reynslu Silju og Hafdísar af honum.
Samtök um endómetríósu, endo.is, standa fyrir viku endómetríósu 7. – 13. aríl 2018. Og einnig er málþing um endómetríósu 11. apríl í Hringsal Landspítalans við Hringbraut. kl: 16:15 – 18:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Sjá nánar:
endo.is
https://www.facebook.com/endometriosa/