Förum vel með okkur

Mér finnst fátt eins sorglegt og þegar fólk á besta aldrei, eftirlaunaaldrinum hefur ekki heilsu til þess að njóta gullnu áranna eins og þau eiga að heita. Heilsan er í raun það mikilvægasta sem við eigum, ef hún hrinur fer ansi margt með henni.

Mikilvægt að huga að líkamanum
Líkaminn er stórfengleg vél sem gerir sálinni kleyft að takast á við tiltekin verkefni sem hluta af enn stærri veruleika með upplifun og framþróun. En umrædd vél þarf sína næringu og aðhlynningu. Hvernig getum við t.d ætlast til að líkaminn dafni og endist ef við nærum hann ekki eins og best verður á kosið. Gefum okkur að við byggjum hús með lélegum byggingarefnum, það mun ekki endast lengi. Það sama gildir um líkamann, ef við borðum rusl, verðum við að rusli.

Hlustum á líkamann
Það skiptir höfuð máli að hlusta á líkamann. Öll einkenni er kall líkamans eftir hjálp, að eitthvað sé að. Ef við förum ekki eftir því og jafnvel deyfum einkennin, t.d með verkjalyfjum, deyfum það eina sem segir okkur að eitthvað sé að getur það valdið varanlegri löskun.

Mikilvægi hreyfingar
Fyrir utan mikilvægi góðrar næringar er hreyfing einnig afar mikilvæg til þess að byggja líkamann upp og auka vellíðan á líkama og sál. Öll hreyfing er af hinu góða, hún þarf ekki að vera bundin við líkamsræktarstöðvar sem þó er alger snilld en göngutúrar 2x í viku á móti 2 sundsprettum og teygjum í heita pottinum er eitthvað sem gerir öllum gott.

Förum vel með okkur, líkamanum er ætlað að endast mun lengur en almennt gengur og gerist. Höfum hugfast hvað nærir hann og hvað letjir. Við vitum öll hvaða fæða nærir okkur og gefur jákvæða orku og einnig hvað gerir það svo sannarlega ekki. T.d óhófleg sykurneysla, unnin matvæli, ýmis skyndibiti og síðast en ekki síst áfengisneysla.

Verum meðvituð, hlustum á líkamann og stefnum á að endast og líða vel með fögur fyrirheit og tilhlökkun um farsæla framtíð og gullin efri ár!