Heilsan var í fyrirrúmi þegar hópur fólks innan heilsugeirans opnaði nýja heimasíðu í dag, föstudaginn 13. Síðan ber heitið heilsumál.is en markmið hennar er að opna á umræðuna um heilsumál og miðla fjölbreyttum upplýsingum og pistlum um andlega- og líkamlega heilsu til sem flestra á eins aðgengilegan máta og hægt er.
Opnunarveisla var haldin með pompi og prakt á Joe & the Juice, Laugum, og var auðséð að fólk tók síðunni fagnandi. Bent Marinósson, framkvæmdastjóri síðunnar, var ánægður með opnunina og vel unnið verk: “Þetta hefur gengið vonum framar, við erum gífurlega sterkur hópur og hlökkum til að halda umræðunni um heilsumál hátt á lofti og hvetjum fólk til að hafa samband við okkur og tengjast síðunni með einum eða öðrum hætti”.
„Við leitumst eftir faglegri umræðu um heilsumál og viljum minnka bilið á milli fagfólks og almennings“ segir Bent ennfremur.