
Heilsumál, 1. þáttur – Kaloríur
Höfundur: 0 athugasemdir
Heilsumál er nýr þáttur hér á vefsíðunni þar sem við munum spjalla um allt sem viðkemur heilsu- og heilsutengdum málum. Í þessum fyrsta þætti settumst við Eva Stephensen niður og spjöllum um kaloríur.
Hvernig reiknar maður út hitaeiningar (kcal) úr matnum?
- Lesa á umbúðir: hitaeiningarnar eru oftast gefnar upp í kcal í 100 grömmum og þá þarf að reikna út frá því magni sem er borðað.
- Nota ísgem (íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla) til þess að finna út hitaeiningarnar. Þetta getur verið nauðsynlegt fyrir þær vörur sem eru ekki merktar með næringaryfirlýsingu, t.d ávextir og grænmeti.
- Ef vörur eru illa mektar og ekki hægt að finna út hitaeiningarnar á umbúðum þá er hægt að snúa sér til framleiðandans eða innflytjandans og biðja um þær upplýsingar, t.d bakaríisvörur.